Endurheimta tvo miðverði en sá þriðji meiddur

Ozan Kabak missir líklega af leiknum gegn Fulham um helgina.
Ozan Kabak missir líklega af leiknum gegn Fulham um helgina. AFP

Nat Phillips og Ben Davies, miðverðir Liverpool, eru klárir í slaginn og geta spilað með liðinu þegar það tekur á móti Fulham á sunnudaginn í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Ozan Kabak er þó smávægilega meiddur og mun líklega missa af leiknum.

Frá þessu greindi Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri liðsins, á blaðamannafundi í dag.

Phillips var ekki í leikmannahópi Liverpool í 0:1-tapinu gegn Chelsea í deildinni í gærkvöldi vegna smávægilegra meiðsla. Hann er búinn að jafna sig á þeim og mun því að öllum líkindum spila í hjarta varnarinnar á sunnudaginn.

Ben Davies hefur verið að glíma við meiðsli síðan hann gekk til liðs við Liverpool í byrjun síðasta mánaðar en er nú orðinn leikfær. Hann hefur ekki enn spilað fyrir liðið.

Ozan Kabak, sem var sömuleiðis keyptur í byrjun febrúar og hefur spilað undanfarna leiki Liverpool í miðverði, er að glíma við smávægilegt vandamál í tengslum við líkamlegt form sitt og mun því væntanlega ekki spila um helgina, þótt búist sé við að hann verði klár í slaginn í síðari leik liðsins gegn RB Leipzig í Meistaradeild Evrópu næstkomandi miðvikudag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert