Kærkominn sigur Dýrlinganna

Che Adams fagnar glæsimarki sínu.
Che Adams fagnar glæsimarki sínu. AFP

Eftir níu leiki í röð án sigurs, þar af átta tapleiki, gat Southampton loks fagnað í dag er liðið vann 2:0-útisigur á botnliði ensku úrvalsdeildarinnar Sheffield United. 

Southampton komst yfir á 32. mínútu er James Ward-Prowse skoraði af öryggi úr vítaspyrnu eftir að Ethan Ampadu tók Nathan Tella niður innan teigs. Reyndist það eina mark fyrri hálfleiks. 

Che Adams, sem kom inn á sem varamaður fyrir meiddan Danny Ings á 13. mínútu, bætti við öðru markinu á 49. mínútu með glæsilegu skoti utan teigs og þar við sat. 

Southampton er í 14. sæti með 33 stig en Sheffield United er sem fyrr í botnsætinu með 14 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert