Leicester upp í annað sætið

Leikmenn Leicester fagna sigurmarkinu.
Leikmenn Leicester fagna sigurmarkinu. AFP

Leicester vann nauman 2:1-sigur á Brighton á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. 

Brighton komst yfir strax á 10. mínútu þegar Adam Lallana skoraði eina mark fyrri hálfleiks eftir undirbúning hjá Neal Maupay. 

Kelechi Iheanacho jafnaði metin á 62. mínútu með huggulegri afgreiðslu eftir glæsilega sendingu frá Youri Tielemans áður en Daniel Amartey skoraði sigurmarkið á 87. mínútu með skalla af stuttu færi eftir mistök hjá Robert Sanchez í marki Brighton. 

Leicester er í öðru sæti með 53 stig, tólf stigum á eftir toppliði Manchester City. Brighton er í 16. sæti með 26 stig, þremur stigum fyrir ofan fallsæti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert