Sýnt beint frá Bramall Lane á mbl.is

Danny Ings er aðal markaskorari Southampton.
Danny Ings er aðal markaskorari Southampton. AFP

Sheffield United og Southampton mætast í 28. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu á Bramall Lane í Sheffield klukkan 15 og hægt er að sjá leikinn í beinni útsendingu hér á mbl.is.

Útsendingin hefst kl. 14.30 með upphitun fyrir leikinn á Símanum Sport og er á sérvefnum Enski boltinn.

Sheffield United situr á botni deildarinnar með aðeins 14 stig og er 12 stigum frá því að komast úr fallsæti. Southampton hefur aðeins fengið eitt stig í síðustu níu leikjum og er dottið niður í fjórtánda sætið með 30 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert