Bjarni um Luke Shaw: Maður leiksins

„Ég minntist á þetta á 75. mínútu hvort hann þyrfti ekki að fara að hægja á sér,“ sagði Bjarni Þór Viðarsson um frammistöðu Lukes Shaws í sigri Manchester United á nágrönnunum í City í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær.

Shaw hefur verið einn af betri mönnum United í vetur og var allt í öllu í grannaslagnum, skoraði annað mark gestanna og var manna duglegastur í þokkabót. „Hann var maður leiksins í dag,“ bætti Bjarni við en hann var að ræða við þau Tómas Þór Þórðarson og Margréti Láru Viðarsdóttur.

Umræðuna má sjá í spil­ar­an­um hér fyr­ir ofan en mbl.is fær­ir ykk­ur efni úr enska bolt­an­um í sam­vinnu við Sím­ann sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert