Nýtur trausts hjá Liverpool

Það gengur ekkert upp hjá Jürgen Klopp og félögum í …
Það gengur ekkert upp hjá Jürgen Klopp og félögum í Liverpool þessa stundina. AFP

Eigendur enska knattspyrnufélagsins Liverpool standa þétt við bakið á knattspyrnustjóranum Jürgen Klopp, þrátt fyrir dapurt gengi að undanförnu.

The Times greinir frá því að það hafi aldrei komið til umræðu að láta Klopp fara enda hafi þýski stjórinn ekki getað spilað á sínu sterkasta liði síðan í október á síðasta ári.

Gengi Liverpool á árinu 2021 hefur hins vegar verið skelfilegt og liðið tapaði sínum sjötta heimaleik í röð í deildinni á Anfield um síðustu helgi en það hefur aldrei gerst áður í 128 ára sögu félagsins.

Times greinir hins vegar frá því að eigendur Liverpool, Fenway Sports Group, hafi mikla trú á leikmannahópi liðsins og muni ekki gera stórvægilegar breytingar á honum næsta sumar.

Klopp hefur talað opinskátt um það í fjölmiðlum að hann vilji styrkja leikmannahóp sinn í sumar en óvíst að það gangi í gegn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert