Leikmaður Liverpool trylltist (myndskeið)

Mikill atgangur varð eftir leik.
Mikill atgangur varð eftir leik. AFP

Nokkrir leikmenn enska U21 árs landsliðs karla í fótbolta áttu erfitt með að ráða við skapið í sér eftir að liðið féll úr leik á EM á afar svekkjandi hátt. 

England þurfti að vinna Króatíu með tveimur mörkum til að fara áfram en Króatía minnkaði muninn í 2:1 í uppbótartíma og sló England úr leik í leiðinni. 

Í kjölfarið brutust út mikil fagnaðarlæti meðal leikmanna og þjálfara Króata sem virtist fara í skapið á leikmönnum Englands og þá helst Curtis Jones, leikmanni Liverpool.

Myndskeið af Jones missa stjórn á skapi sínu og veitast að leikmönnum Króata má sjá hér fyrir neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert