Fimm mörk í fyrsta sigrinum

Dagný Brynjarsdóttir leikur með West Ham.
Dagný Brynjarsdóttir leikur með West Ham. Ljósmynd/West Ham

Knattspyrnukonan Dagný Brynj­ars­dótt­ir og stöllur í West Ham unnu loks sinn fyrsta sigur eftir að íslenska landsliðskonan gekk til liðs við Lundúnaliðið, 5:0 á útivelli gegn Reading.

Dagný var í byrjunarliðinu fjórða leikinn í röð en West Ham tapaði tveimur og gerði eitt jafntefli í fyrstu þremur. Annað var þó uppi á teningnum í dag er West Ham lék á als oddi og skoraði fimm mörk á 30 mínútna kafla. Fyrsta markið kom á sjöundu mínútu og það fimmta á 37. mínútu.

West Ham er í 10. sæti ensku úrvalsdeildarinnar af 12 liðum en Dagný var í byrjunarliðinu í dag og spilaði allan leikinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert