Sýnt beint frá Elland Road á mbl.is

Leeds er nýliði í úrvalsdeildinni en er í þægilegri stöðu …
Leeds er nýliði í úrvalsdeildinni en er í þægilegri stöðu um miðja deild þegar níu umferðum er ólokið. AFP

Leeds og Sheffield United mætast í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á Elland Road í Leeds klukkan 15.00 og hægt er að sjá leikinn í beinni útsendingu hér á mbl.is.

Útsendingin hefst kl. 13.30 með upphitun fyrir leikinn á Símanum Sport og er á sérvefnum Enski boltinn.

Leeds er í 11. sæti deildarinnar með 39 stig að 29 umferðum loknum en nágrannarnir í Sheffield United sitja á botninum með aðeins 14 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert