Langþráð sigurmark Liverpool á Anfield

Trent Alexander-Arnold fagnar hér sigurmarki sínu.
Trent Alexander-Arnold fagnar hér sigurmarki sínu. AFP

Liverpool vann 2:1-heimasigur á Aston Villa á Anfield í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag þökk sé sigurmarki í uppbótartíma.

Ekkert hefur gengið hjá Englandsmeisturunum á heimavelli á árinu en þeir voru ekki búnir að skora mark úr opnum leik á Anfield síðan í desember, tapað sex síðan þá og gert eitt jafntefli. Það stefndi svo í enn einn skellinn er Ollie Watkins kom gestunum yfir á 43. mínútu með föstu skoti sem Alisson missti undir sig í marki Liverpool.

Heimamenn héldu að þeir væru að jafna rétt fyrir hálfleik þegar Roberto Firmino kom knettinum í netið en Diogo Jota var metinn rangstæður í aðdraganda marksins eftir athugun myndbandsdómara.

Liverpool jafnaði þó metin á 57. mínútu, Mohamed Salah gerði það, hirti frákastið og skoraði eftir að Emiliano Martínez varði fast skot Andrew Robertson út í teiginn. Heimamenn kreistu svo fram dramatískt sigurmark í uppbótartíma, Trent Alexander-Arnold skot boltanum fast í fjærhornið frá vítateigslínunni. Með sigrinum fer Liverpool upp í Meistaradeildarsæti, 4. sætið, og hefur þar 52 stig. West Ham er með 52 stig í 5. sæti og Chelsea sæti neðar með 51 stig en bæði lið eiga leik til góða.

Roberto Firmino skýtur að marki Aston Villa á Anfield í …
Roberto Firmino skýtur að marki Aston Villa á Anfield í dag. Ezri Konsa kemur sér fyrir skotið. AFP
Liverpool 2:1 Aston Villa opna loka
90. mín. Trent Alexander-Arnold (Liverpool) skorar 2:1 - Í uppbótartíma! Martínez ver virkilega vel frá Thiago af stuttu færi en boltinn berst þá til Alexander-Arnold við vítateigslínuna, hann tekur snertingu og þrumar svo knettinum fast í fjærhornið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert