Sýnt beint frá Anfield á mbl.is

Sadio Mané og James Milner taka á móti Aston Villa …
Sadio Mané og James Milner taka á móti Aston Villa á Anfield í dag. AFP

Liverpool og Aston Villa mætast í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á Anfield í Liverpool klukkan 14.00 og hægt er að sjá leikinn í beinni útsendingu hér á mbl.is.

Útsendingin hefst kl. 13.30 með upphitun fyrir leikinn á Símanum Sport og er á sérvefnum Enski boltinn.

Skammt er á milli liðanna sem eru í baráttu um Evrópusæti. Liverpool er í sjötta sæti deildarinnar með 49 stig og Aston Villa er í áttunda sætinu með 44 stig og á einn leik til góða á Liverpool.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert