Jóhann byrjar á Old Trafford

Jóhann Berg Guðmundsson er í byrjunarliði Burnley.
Jóhann Berg Guðmundsson er í byrjunarliði Burnley. AFP

Jóhann Berg Guðmundsson er í byrjunarliði Burnley sem heimsækir Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Flautað er til leiks klukkan 15. 

Er þetta fimmti leikurinn í röð sem Jóhann byrjar fyrir Burnley í ensku úrvalsdeildinni og virðist hann loksins vera búinn að ná sér að fullu eftir þrálát meiðsli. 

Manchester United er í öðru sæti deildarinnar, ellefu stigum á eftir toppliði Manchester City. Burnley er í 17. sæti og enn í fallbaráttu. 

Leiknum verður lýst í beinni textalýsingu á mbl.is auk þess sem hann er í beinni útsendingu á https://www.mbl.is/sport/enski/.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert