Öll ensku liðin hætt við ofurdeildina

AFP

Ensku knattspyrnufélögin Tottenham, Manchester United, Liverpool og Arsenal hafa öll tilkynnt að þau séu hætt  við þátttöku í fyrirhugaðri ofurdeild Evrópu.

Félögin fjögur tilkynntu þetta hvert á fætur öðru nú í kringum klukkan 22 að íslenskum tíma, í kjölfarið á því að Manchester City og Chelsea drógu sig út úr tólf félaga hópnum fyrr í kvöld. Chelsea er reyndar eina félagið af þessum sex sem hefur ekki tilkynnt formlega að það sé hætt við.

„Við hlustuðum vel á viðbrögðin frá stuðningsfólki okkar, bresku ríkisstjórninni og öðrum lykilaðilum,“ segir m.a. í yfirlýsingu Manchester United.

„Eftir að hafa hlustað á ykkur og allt fótboltasamfélagið síðustu daga drögum við okkur úr hinni fyrirhuguðu ofurdeild. Við gerðum mistök og biðjumst fyrirgefningar á því,“ segir í yfirlýsingu Arsenal.

„Okkur þykir miður að hafa valdið áhyggjum og óróa með framlagi ESL (European Super League). Við töldum mikilvægt að félagið okkar tæki þátt í að þróa nýtt keppnisfyrirkomulag sem myndi tryggja betur fjárhagslega háttvísi og fjárhagslegt sjálfstæði, og gætum um leið stuðlað að auknum stuðningi við fótboltann,“ sagði Daniel Levy stjórnarformaður Tottenham í yfirlýsingu félagsins.







mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert