Glórulausa rauða spjaldið dregið til baka

Atvikið sem Fabián Balbuena var rekinn af velli fyrir.
Atvikið sem Fabián Balbuena var rekinn af velli fyrir. AFP

Fabián Balbuena, varnarmaður West Ham, er ekki á leiðinni í leikbann fyrir rauða spjaldið sem hann fékk í leik liðsins gegn West Ham um síðustu helgi.

Paragvæinn var rekinn af velli eftir að hafa hreinsað knöttinn upp völlinn og í kjölfarið stigið á Ben Chilwell, leikmann Chelsea. Chris Kavanagh dómari skoðaði atvikið í VAR og ákvað að gefa leikmanninum beint rautt spjald.

Viðbrögðin hafa svo ekki látið standa á sér. David Moyes, knattspyrnustjóri West Ham, var æfur í viðtölum við fjölmiðla eftir leik og fullyrti að Balbuena hefði ekki einu sinni brotið á honum. Þá tóku Hermann Hreiðarsson og Gylfi Einarsson í sama streng er þeir ræddu atvikið á Símanum Sport á sunnudaginn eins og sjá má með því að smella á tengilinn hér að neðan.

West Ham áfrýjaði spjaldinu og hefur úrskurðarnefnd ensku úrvalsdeildarinnar ákveðið að draga það til baka. Balbuena er því ekki á leiðinni í leikbann og verður klár í slaginn með West Ham sem mætir Burnley um næstu helgi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert