Getum farið að setja kampavínið í kælinn

Enski meistaratitillinn er innan seilingar fyrir lærisveina Pep Guardiola í …
Enski meistaratitillinn er innan seilingar fyrir lærisveina Pep Guardiola í Manchester City. AFP

Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, viðurkennir að kampavínið verði brátt opnað eftir að sigur gegn Crystal Palace í gær varð til þess að það þarf aðeins tvö stig til viðbótar til þess að fagna sigri í ensku úrvalsdeildinni.

„Við getum byrjað að huga að því að setja kampavínið í ísskápinn. Við drekkum það ekki strax en getum farið að kæla það,“ sagði Guardiola við BT Sport eftir 2:0 sigurinn í gær.

„Úrvalsdeildin er þarna innan seilingar, þetta er í okkar höndum. Við þurfum einn sigur í viðbót eða tvö stig,“ bætti hann við.

Liðið undirbýr sig nú fyrir síðari leikinn gegn París Saint-Germain í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu eftir að hafa unnið fyrri leikinn 2:1 í París í vikunni. „Nú hugsum við um PSG. Það er leikur þar sem við þurfum að gefa allt sem við eigum,“ sagði Guardiola.

Man City getur orðið meistari í dag fari svo að Liverpool vinni Manchester United á Old Trafford í stórslag helgarinnar. Við skoðum fyrri leikinn og hvað við þurfum að gera en ég mun fylgjast með leik Manchester United og Liverpool,“ viðurkenndi hann að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert