Öruggt hjá Southampton gegn Fulham

Theo Walcott gulltryggði sigur Southampton.
Theo Walcott gulltryggði sigur Southampton. AFP

Southampton vann öruggan 3:1-sigur á föllnum Fulham-mönnum á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. 

Southampton fór betur af stað og Che Adams kom liðinu yfir á 27. mínútu með eina marki fyrri hálfleiks. Nathan Tella bætti við öðru marki á 60. mínútu, áður en Fabio Carvalho minnkaði muninn fyrir Fulham, en bæði Tella og Carvalho voru að skora sín fyrstu mörk í deildinni. 

Heimamenn í Southampton átti lokaorðið því Theo Walcott skoraði þriðja markið á 82. mínútu eftir sendingu frá Tella og þar við sat. 

Southampton er í 13. sæti með 43 stig og Fulham í 18. sæti með 27 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert