Svanirnir í góðum málum eftir útisigur

Leikmenn Swansea fagna sigurmarkinu.
Leikmenn Swansea fagna sigurmarkinu. Ljósmynd/Swansea

Swansea er í góðum málum í einvígi sínu gegn Barnsley í undanúrslitum í umspili um sæti í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta eftir 1:0-útisigur í fyrri leik liðanna í kvöld.

André Ayew skoraði sigurmarkið á 39. mínútu í annars frekar tíðindalitlum leik, en Barnsley komst óvænt í umspilið. Swansea er í umspilinu annað tímabilið í röð.

Sigurvegarinn úr einvíginu mætir annaðhvort Brentford eða Bournemouth í úrslitaleik á Wembley en Bournemouth vann heimaleik einvígisins fyrr í dag, 1:0.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert