Frank Lampard líklegastur

Frank Lampard var rekinn frá Chelsea í janúar.
Frank Lampard var rekinn frá Chelsea í janúar. AFP

Frank Lampard er efstur á óskalista forráðamanna enska knattspyrnufélagsins Crystal Palace um að taka við liðinu af Roy Hodgson í sumar. Það er talkSport sem greinir frá þessu.

Hodgson, sem er orðinn 73 ára gamall, hefur stýrt Crystal Palace frá árinu 2017 en samningur hans við félagið rennur út í sumar.

Crystal Palace siglir lygnan sjó í þrettánda sæti deildarinnar með 44 stig en talið er samningur Hodgson hjá félaginu verði ekki endurnýjaður.

Lampard, sem er 42 ára gamall, var rekinn frá Chelsea í lok janúar á þessu ári, eftir að hafa tekið við liðinu sumarið 2019.

Lampard hefur einnig stýrt liði Derby á stjóraferli sínum þar sem hann náði góðum árangri en hann hefur verið án starfs síðan í janúar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert