Mörkin: Ótrúlegt sjálfsmark

Sergio Reguilón, bakvörður Tottenham, skoraði ótrúlegt sjálfsmark í 1:2-tapi liðsins á móti Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. 

Tottenham komst í 1:0 en Aston Villa sneri taflinu við og vann að lokum 2:1-sigur. 

Sjálfsmarkið ótrúlega og önnur tilþrif úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert