Mörkin: Óvæntir markaskorarar Liverpool

Tveir leikmenn Liverpool skoruðu sitt fyrsta mark í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á leiktíðinni í 3:0-sigrinum á Burnley í kvöld. 

Nat Phillips skoraði með skalla í seinni hálfleik, áður en varamaðurinn Alex Oxlade-Chamberlain gulltryggði sigurinn undir lokin. 

Með sigrinum fór Liverpool upp í fjórða sætið og er í góðum málum í baráttunni um sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. 

Svipmyndir úr leiknum má sjá hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert