Joe Willock skoraði í sjötta leiknum í röð í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta er hann gerði fyrra mark Newcastle í 2:0-útisigrinum á Fulham í lokaumferð deildarinnar í dag.
Willock er lánsmaður frá Arsenal og mun Newcastle eflaust reyna hvað það getur að fá hann aftur í raðir félagsins á næstu leiktíð.
Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.