Heimsklassa leikmaður dettur inn hjá Liverpool (myndskeið)

Brynjar Björn Gunnarsson og Bjarni Þór Viðarsson voru gestir Tómasar Þórs Þórðarsonar á Vellinum á Símanum sport í gær.

Á meðal umræðuefna þeirra félaga var Liverpool, sem vann öruggan 3:0-útisigur á Norwich í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á laugardag.

Þrátt fyrir sigurinn stóra eiga Brynjar, Bjarni og Tómas von á því að félagið kaupi nýjan leikmann á næstu dögum.

Umræðurnar má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert