Bjarni: Þetta var draumamark (myndskeið)

Trevoh Chalobah stal senunni er Chelsea vann sannfærandi 3:0-sigur á Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni um helgina.

Chalobah, sem er 22 ára, er uppalinn hjá Chelsea en hann er fyrst núna að fá tækifæri hjá aðalliði félagsins. Miðjumaðurinn nýtti tækifærið vel því hann skoraði glæsilegt þriðja mark Chelsea.

Bjarni Þór Viðarsson og Brynjar Björn Gunnarsson voru gestir Tómasar Þórs Þórðarsonar í Vellinum á Símanum sport þar sem markið hjá Chalobah var meðal annars rætt.

Innslagið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert