Mörkin: Chelsea-maðurinn skoraði tvö fyrir Palace

West Ham tapaði sínum fyrstu stigum á tímabilinu í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag er liðið gerði 2:2-jafntefli við Crystal Palace á heimavelli. Stigið var það fyrsta sem Palace fær á leiktíðinni og það fyrsta síðan Patrick Vieira tók við liðinu.

Conor Gallagher, lánsmaður frá Chelsea, var áberandi hjá Palace því hann skoraði bæði mörk liðsins. Pablo Fornals og Michail Antonio gerðu mörk West Ham.

Svipmyndir úr leiknum má sjá hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert