Mörkin: Jafnaði á sjöttu mínútu uppbótartímans

James Ward-Prowse skoraði jöfnunarmark Southampton á sjöttu mínútu uppbótartímans er liðið gerði 2:2-jafntefli við Newcastle á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. 

Ward-Prowse skoraði markið úr vítaspyrnu eftir skoðun í VAR og mikla dramatík. Callum Wilson og Allan Saint-Maximin komu Newcastle tvisvar yfir en Mohamed Elyounoussi jafnaði í fyrra skiptið og Ward-Prowse í það seinna. 

Mörkin og önnur tilþrif má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert