Mörkin: Skoraði sigurmarkið með þrumufleyg

Marc Albrighton var hetja Leicester í 2:1-sigri á nýliðum Norwich á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. 

Albrighton skoraði sigurmarkið með þrumufleyg úr teignum á 76. mínútu. Jamie Vardy hafði komið Leicester yfir snemma leiks en Teemu Pukki jafnað úr víti skömmu fyrir leikhlé. 

Svipmyndir úr leiknum má sjá hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert