Villa keyrði yfir Everton í seinni

Leon Bailey fagnar þriðja marki Aston Villa.
Leon Bailey fagnar þriðja marki Aston Villa. AFP

Aston Villa vann sterkan 3:0-heimasigur á Everton í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Eftir markalausan fyrri hálfleik kom Matty Cash Villa yfir á 66. mínútu. Við það hrundi leikur Everton og Lucas Digne skoraði sjálfsmark aðeins þremur mínútum síðar. Leon Bailey gulltryggði 3:0-sigur Villa á 75. mínútu.

Aston Villa fór upp í sjö stig og í tíunda sæti með sigrinum. Everton er í fimmta sæti með tíu stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert