Áfall fyrir Chelsea

N'Golo Kanté í baráttunni við Jack Grealish í leik Manchester …
N'Golo Kanté í baráttunni við Jack Grealish í leik Manchester City og Chelsea á dögunum. AFP

N'Golo Kanté, miðjumaður enska knattspyrnufélagsins Chelsea, missir af næstu leikjum liðsins vegna veikinda. Þetta tilkynnti félagið í dag.

Kanté verður því ekki með Chelsea á morgun þegar liðið heimsækir Juventus í H-riðli Meistaradeildarinnar.

Þá verður hann einnig fjarverandi þegar Chelsea tekur á móti Southampton í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn kemur.

Kanté, sem er 30 ára gamall, hefur byrjað tvo leiki í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu og skorað eitt mark en Chelsea er með 13 stig í þriðja sæti deildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert