Kanté greindist með veiruna

N'Golo Kanté verður fjarri góðu gamni á næstunni vegna kórónuveirusmits.
N'Golo Kanté verður fjarri góðu gamni á næstunni vegna kórónuveirusmits. AFP

N'Golo Kanté, miðjumaður enska knattspyrnufélagsins Chelsea, hefur greinst með kórónuveiruna.

Fyrr í dag tilkynnti félagið að Kanté myndi missa af næstu leikjum liðsins vegna veikinda og nú hefur það fengist staðfest að hann hefur greinst með veiruna.

Kanté fór beint í einangrun eftir að hafa greinst og má ekki yfirgefa hana í 10 daga.

Thomas Tuchel, knattspyrnustjóri Chelsea, staðfesti tíðindin á blaðamannafundi í dag en sagðist aðspurður ekki vita hvort Kanté væri bólusettur eða hve stór hluti leikmannahóps síns væri það.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert