Spánverjinn tryggði fyrsta sigur Leeds (myndskeið)

Leeds vann sinn fyrsta sigur á leiktíðinni í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta er liðið lagði Watford á heimavelli í dag, 1:0.

Diego Llorente, sem var að leika sinn fyrsta leik í nokkrar vikur vegna meiðsla, skoraði sigurmarkið eftir að Watford tókst ekki að koma boltanum í burtu eftir hornspyrnu.

Sigurmarkið og önnur tilþrif úr leiknum má sjá hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert