Lukaku og Werner meiddust

Romelu Lukaku fer af velli á Stamford Bridge í kvöld.
Romelu Lukaku fer af velli á Stamford Bridge í kvöld. AFP

Chelsea varð fyrir skakkaföllum í Meistaradeildinni í kvöld en tveir sóknarmenn liðsins þurftu að fara af velli gegn Malmö í London. 

Lasse Nielsen braut á Belganum Romelu Lukaku sem virtist meiðast á ökkla og haltraði af velli. 

Þjóðverjinn Timo Werner meiddist fyrir hlé og líklega aftan í læri. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert