Jákvæðar fréttir fyrir Solskjær

Raphaël Varane er klár í slaginn á nýjan leik.
Raphaël Varane er klár í slaginn á nýjan leik. AFP

Raphaël Varane, varnarmaður enska knattspyrnufélagsins Manchester United, er klár í slaginn eftir meiðsli. Þetta staðfesti félagið á samfélagsmiðlum sínum í dag.

Varane meiddist í landsliðsverkefni með Frakklandi í landsleikjaglugganum í október og hefur því misst af síðustu þremur leikjum United.

Í þessum tveimur leikjum hefur United fengið á sig ellefu mörk og því ljóst að liðið hefur saknað hans mikið en hann gekk til liðs við United frá Real Madrid í sumar.

United borgaði 34 milljónir punda fyrir miðvörðinn sem er 28 ára gamall en hann hefur verið lykilmaður í franska landsliðinu undanfarin ár.

United heimsækir Tottenham í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn kemur en liðið er án sigurs í síðustu fjórum deildarleikjum sínum og hefur tapað þremur þeirra.

Fari svo að United tapi um helgina gæti Ole Gunnar Solskjær, stjóri liðsins,  verið rekinn en hann er sagður vera á síðasta séns hjá félaginu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert