Liverpool burstaði Arsenal

Liverpool vann sannfærandi sigur í stórleiknum í kvöld.
Liverpool vann sannfærandi sigur í stórleiknum í kvöld. AFP

Liverpool vann afar sannfærandi 4:0-sigur á Arsenal á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Liverpool var töluvert betra liðið allan leikinn og hefðu mörkin getað orðið fleiri, en Aaron Ramsdale í marki Arsenal varði nokkrum sinnum gríðarlega vel.

Ramsdale hélt Arsenal í leiknum framan af, en hann var loks sigraður þegar Sadio Mané skoraði með skalla á 39. mínútu og var staðan í hálfleik 1:0.

Diogo Jota tvöfaldaði forskot Liverpool á 52. mínútu er hann lék á Ben White og síðan Ramsdale og skoraði fallegt mark. Mo Salah bætti við þriðja markinu á 73. mínútu og varamaðurinn Takumi Minamino gulltryggði 4:0-sigur með marki á 77. mínútu, mínútu eftir að hann kom inn á sem varamaður.

Liverpool er í öðru sæti með 25 stig og Arsenal í fimmta sæti með 20 stig.

Liverpool 4:0 Arsenal opna loka
90. mín. Leik lokið Auðvelt hjá Liverpool í dag. Miklu betri allan leikinn.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert