Arsenal aftur á sigurbraut

Bukayo Saka skorar fyrsta mark leiksins.
Bukayo Saka skorar fyrsta mark leiksins. AFP

Arsenal vann verðskuldaðan 2:0-heimasigur á Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Eftir markalausan fyrri hálfleik, þar sem Arsenal var töluvert betri aðilinn, kom Bukayo Saka heimaliðinu verðskuldað yfir á 56. mínútu er hann slapp einn gegn Martin Dúbravka í marki Newcastle og skoraði af öryggi.

Tíu mínútum síðar gulltryggði Gabriel Martinelli 2:0-sigur er hann kláraði glæsilega í teignum eftir sendingu fram völlinn frá Japananum Tekehiro Tomiyasu. Stuttu áður hafði Martinelli komið inn á fyrir Saka vegna meiðsla.

Sigurinn hefði getað orðið stærri og fékk Pierre-Emerick Aubameyang m.a. sannkallað dauðafæri í fyrri hálfleik er hann skaut í stöng fyrir opnu marki. Jonjo Shelvey fékk besta færi Newcastle en Aaron Ramsdale í marki Arsenal varði vel í slánna er miðjumaðurinn átti hörkuskot rétt utan teigs.

Sigur Arsenal var hinsvegar verðskuldaður og gott svar eftir 0:4-skellinn gegn Liverpool í síðustu umferð. Arsenal er í fimmta sæti með 23 stig en Newcastle er sem fyrr án sigurs í botnsætinu með sex stig.

Arsenal 2:0 Newcastle opna loka
90. mín. Lascelles tekur Martinelli niður innan teigs og Arsenal-maðurinn liggur eftir. Ekkert dæmt, en leikurinn stöðvaður á meðan Martinelli fær aðhlynningu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert