Gerrard stýrði Villa aftur til sigurs

Steven Gerrard fer frábærlega af stað sem knattspyrnustjóri Aston Villa.
Steven Gerrard fer frábærlega af stað sem knattspyrnustjóri Aston Villa. AFP

Draumabyrjun Steven Gerrards við stjórnvölinn hjá Aston Villa heldur áfram. Í dag gerði liðið góða ferð til Lundúna og lagði Crystal Palace 2:1 í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu karla.

Matt Targett kom gestunum yfir eftir stundarfjórðungs leik þegar. Ashley Young tók þá hornspyrnu frá hægri, James Tomkins í liði Palace missti boltann yfir sig. Targett gat því tekið við boltanum í vítateignum og skoraði með föstu ristarskoti af stuttu færi.

Það var svo ekki fyrr en á 86. Mínútu að annað mark Villa í leiknum kom. Anwar El Ghazi renndi þá boltanum til hliðar á John McGinn sem skoraði með glæsilegu skoti rétt fyrir utan teig.

Á fimmtu mínútu uppbótartíma minnkaði Marc Guéhi muninn fyrir Palace þegar hann potaði fyrirgjöf Cheikhou Kouyaté yfir línuna af stuttu færi.

Lengra komust heimamenn í Palace þó ekki og sterkur eins marks útisigur Villa staðreynd.

Fyrsti leikur Villa undir stjórn Gerrards um síðustu helgi endaði einnig með sigri, þegar liðið vann Brighton & Hove Albion 2:0.

Einn annar leikur fór fram klukkan 15 í ensku úrvalsdeildinni í dag. Það var viðureign Norwich City og Wolverhampton Wanderers og lauk leiknum með markalausu jafntefli.

Nýr stjóri Norwich, Dean Smith, fer því sömuleiðis vel af stað en liðið fylgdi eftir 2:1 sigri gegn Southampton í hans fyrsta leik um síðustu helgi með því að krækja í eitt stig í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert