Ungstirnið tæpt fyrir stórleikinn

Bukayo Saka í leiknum gegn Newcastle um síðustu helgi.
Bukayo Saka í leiknum gegn Newcastle um síðustu helgi. AFP

Bukayo Saka er að glíma við smávægileg meiðsli og gæti af þeim sökum misst af stórleik Arsenal gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu karla annað kvöld.

Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, greindi frá þessu á blaðamannafundi í dag. Saka fór meiddur af velli í 2:0 sigri liðsins gegn Newcastle United um síðustu helgi.

„Granit [Xhaka] er ekki enn tilbúinn. [Sead] Kolasinac er ekki enn tilbúinn. Það liggur vafi á því hvort Bukayo geti spilað og sömuleiðis eru nokkrir tæpir til viðbótar eftir leikinn gegn Newcastle.

Ég er vongóður þegar kemur að Bukayo en við vitum það ekki nákvæmlega hvort hann geti spilað,“ sagði Arteta um stöðuna á leikmannahópnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert