Jákvæðar fréttir fyrir Leeds

Patrick Bamford skoraði 17 mörk fyrir Leeds í ensku úrvalsdeildinni …
Patrick Bamford skoraði 17 mörk fyrir Leeds í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. AFP

Luke Ayling og Patrick Bamford eru byrjaðir að æfa á nýjan leik með enska knattspyrnufélaginu Leeds. Þetta tilkynnti Marcelo Bielsa, stjóri liðsins, á blaðamannafundi í dag.

Bielsa vonast til þess að þeir verði báðir klárir í slaginn um helgina þegar Leeds tekur á móti Brenford í ensku úrvalsdeildinni.

Ayling og Bamford voru lykilmenn í liðinu á síðustu leiktíð en liðið hefur verið í basli í upphafi tímabils og er með 15 stig í fimmtánda sæti deildarinnar, fimm stigum frá fallsæti.

„Það bendir allt til þess að þeir geti spilað á sunnudaginn,“ sagði Bielsa á blaðamannafundinum í dag.

„Þeir eru báðir mikilvægir leikmenn fyrir okkur og það verður gott að fá þá aftur,“ sagði Bielsa meðal annars.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert