Sannfærandi City-menn á toppinn

Bernardo Silva skorar sitt annað mark í kvöld.
Bernardo Silva skorar sitt annað mark í kvöld. AFP

Manchester City er komið á topp ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta eftir sannfærandi 3:1-útisigur á Watford í lokaleik dagsins.

Raheem Sterling kom City yfir strax á fjórðu mínútu eftir undirbúning hjá Phil Foden og Bernardo Silva bætti við marki á 31. mínútu. Staðan í leikhléi var því 2:0.

Silva, sem hefur verið magnaður undanfarnar vikur, bætti við sínu öðru marki á 63. mínútu eftir sendingu frá Kyle Walker og kom City í 3:0. Cucho Hernández lagaði stöðuna fyrir nýliða Watford á 74. mínútu og þar við sat.

Manchester City er með 35 stig, einu stigi meira en Liverpool og tveimur meira en Chelsea. Liverpool vann 1:0-sigur á Wolves fyrr í dag á meðan Chelsea tapaði fyrir West Ham, 2:3. Watford er í 17. sæti með 13 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert