Segja blóðinu stríð á hendur

Idris Elba hefur lengi látið sig baráttuna gegn ofbeldi í …
Idris Elba hefur lengi látið sig baráttuna gegn ofbeldi í Lundúnum varða. Idris Elba hefur lengi látið sig baráttuna gegn ofbeldi í Lundúnum varða. AFP

Enska knattspyrnufélagið Arsenal mun um helgina í fyrsta sinn leika í alhvítum búningi í enska bikarnum. Gjörningurinn er liður í No More Red-átakinu sem stefnt er gegn vaxandi hnífaofbeldi í Lundúnum.

Þrjátíu ungmenni létust í hnífstunguárásum í Lundúnum á nýliðnu ári – sem er mesti fjöldi sem um getur. Eftir að þetta var upplýst í síðustu viku settust forvígismenn íþróttavöruframleiðandans Adidas og enska knattspyrnufélagsins Arsenal niður til ræða hvernig þeir gætu lagt sitt lóð á vogarskálarnar til að vekja athygli á þessari ógnvekjandi þróun. Niðurstaðan var sú að Arsenal, sem alla jafna leikur í rauðu og hvítu, myndi mæta til leiks í bikarkeppni enska knattspyrnusambandsins í dag, sunnudag, í alhvítum búningi – í fyrsta skipti í 136 ára sögu félagsins.

Kveðjum roðann

Yfirskrift átaksins er No More Red eða Kveðjum roðann og vel fer á því að andstæðingur Arsenal í leiknum sé Nottingham Forest en þaðan kemur einmitt rauði liturinn í búningi liðsins. Öfugt við það sem síðar varð þá óð Arsenal ekki í seðlum á sokkabandsárum sínum og þegar Forest hugðist henda gömlu búningunum sínum og fá sér nýja þáðu Skytturnar í Lundúnum þá gömlu með þökkum. Og hafa haldið sig við rautt síðan. Hvítu ermarnar komu ekki til sögunnar fyrr en 1933.

Ólíkt því sem tíðkast með keppnisbúninga þá verður hvíti búningurinn hvergi til sölu en til stendur að afhenda hann fólki sem hefur látið til sín taka í samfélaginu. Treyjurnar tíu sem útileikmenn Arsenal munu skrýðast í dag verða að leik loknum færðar stofnunum og samtökum sem hafa freistað þess að komast að rótum vandans þegar kemur að hnífaárásum og glæpum ungmenna. Sem dæmi má nefna Ekki stinga framtíð þína (Don’t Stab Your Future) sem notað hafa tísku og annað til að freista þess að halda ungmennum frá glæpum.

Átakið nú er í takti við annað átak sem félagið stendur fyrir, Arsenal í samfélaginu, en það hverfist um að koma upp öruggum fótboltavöllum fyrir ungmenni í Lundúnum.
Meðal þeirra sem leggja átakinu lið eru Arsenal-goðsögnin og sjónvarpsmaðurinn Ian Wright og kvikmyndaleikarinn og hjartaknúsarinn Idris Elba, stofnandi samtakanna Ekki stinga framtíð þína.

Leikmenn Arsenal munu skrýðast þessum treyjum á City Ground í …
Leikmenn Arsenal munu skrýðast þessum treyjum á City Ground í Nottingham í dag. Það er liður í átakinu Kveðjum roðann eða No More Red. Ljósmynd/Arsenal.com


„Sú hugmynd að Arsenal hlaupi út á völlinn í alhvítum búningi og lýsi yfir því að það kveðji roðann fær vonandi einhverja til að staldra við og hugsa: Bíddu nú hægur, hvað er hér á seyði? Síðan fari fólk og afli sér frekari upplýsinga,“ segir Elba í samtali við sjónvarpsstöðina Sky Sports News.

Hann segir brýnt að gefa ungu fólki, ekki síst táningum, valkost í þessu lífi, annað en hnífaburð og glæpagengi.

„Vonandi hefur þetta áhrif, hvetur önnur knattspyrnufélög til dáða og stuðlar að frekara samstarfi og fjárfestingu í gagnlegum hlutum sem hjálpa ungu fólki, hvort sem það er á sparkvöllum eða öðrum miðstöðvum, eins og þeirri í Forest Gate, þar sem ég stundaði mínar íþróttir og féll raunar fyrir kvikmyndagerð.“

Tengdi strax við átakið

Ekki kemur á óvart að Arsenal og Adidas hafi snúið sér til Elba en leikarinn hefur verið óþreytandi við að vekja fólk til vitundar um glæpi af þessu tagi. „Ég tengdi strax við þetta átak. Ég á marga unga aðdáendur og þeir segja gjarnan við mig: Idris, þú ólst upp á sama stað og ég. Hvernig fórstu að þessu? Sama máli gegnir um knattspyrnumennina. Að sjá þessa tvo risa lýsa yfir vilja sínum til að hafa áhrif, láta gott af sér leiða, hreif mig strax,“ segir Elba.

Leikarinn gerir sér engar grillur um að hann, Adidas og Arsenal séu þess umkomin að leysa vandann fyrir fullt og fast. „Við getum hins vegar vakið umtal sem aftur gerir það af verkum að fólk verður betur meðvitað um stöðu mála. Allt frá þeim sem framleiða og selja hnífana til þeirra sem halda á þeim og beita. Þetta snýst um að auka vitundina og gera öllum ljóst að við séum að fylgjast með.“

Meira má lesa um þetta átak í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins, þar sem Ian Wright og fleiri taka til máls. 

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert