Lundúnaslagnum frestað

Mikel Arteta fagnar marki í sigurleik Arsenal gegn Tottenham. Hann …
Mikel Arteta fagnar marki í sigurleik Arsenal gegn Tottenham. Hann fagnar frestun dagsins væntanlega svona líka. AFP

Leik Tottenham og Arsenal sem fram átti að fara á morgun hefur verið frestað, vegna þess að Arsenal eru ekki með nægilega marga leikmenn klára í leikinn.

Arsenal óskaði eftir frestun á leiknum og fékk hana samþykkta í dag. Liðið er einungis með 13 útileikmenn og einn markmann klárann í leikinn en mikið er um Covid-smit og meiðsli meðal leikmanna, ásamt því að nokkrir eru í Afríkukeppninni.

Ekki hefur verið gefið út hvenær leikurinn muni fara fram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert