Verður Rooney arftaki Benítez?

Rafael Benítez er að missa vinnuna.
Rafael Benítez er að missa vinnuna. AFP

Forráðamenn enska knattspyrnufélagsins Everton hafa ákveðið að reka Rafa Benítez frá starfi sem knattspyrnustjóri liðsins eftir afar dapurt gengi síðustu mánuði.

Pete O‘Rourke, blaðamaður Sky Sports, greindi frá að Everton tilkynni brottreksturinn í síðasta lagi á mánudag.

Evert­on hef­ur aðeins unnið einn deild­ar­leik síðan í sept­em­ber og er liðið í 16. sæti, sex stig­um fyr­ir ofan fallsæti. Liðið tapaði fyr­ir botnliði Norwich á úti­velli í dag, 2:1.

Wayne Rooney, fyrrverandi leikmaður Everton, hefur verið orðaður við stjórastöðuna hjá liðinu en hann hefur gert afar góða hluti með Derby í B-deildinni, þrátt fyrir gríðarlega erfiða stöðu félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert