Staðfesta brottrekstur Benítez

Rafael Benítez er ekki lengur knattspyrnustjóri Everton.
Rafael Benítez er ekki lengur knattspyrnustjóri Everton. AFP

Enska knattspyrnufélagið Everton staðfesti í dag brottrekstur Spánverjans Rafael Benítez sem knattspyrnustjóra félagsins eftir sex mánuði í starfi.

Everton hefur aðeins unnið einn deildarleik síðan í september og er liðið í 15. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, sex stigum fyrir ofan fallsæti. Liðið tapaði fyrir Norwich á útivelli í gær, 1:2, en Norwich var í botnsæti deildarinnar fyrir leikinn.

Wayne Roo­ney, fyrr­ver­andi leikmaður Evert­on, hef­ur verið orðaður við stjóra­stöðuna hjá liðinu en hann hef­ur gert afar góða hluti með Der­by í B-deild­inni, þrátt fyr­ir gríðarlega erfiða stöðu fé­lags­ins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert