Bíða ákvörðunar dómstóla í máli Gylfa

Gylfi Þór Sigurðsson.
Gylfi Þór Sigurðsson. Ljósmynd/Szilvia Micheller

Lögreglan í Manchesterborg bíður nú ákvörðunar dómstóla í máli knattspyrnumannsins Gylfa Þórs Sigurðssonar. Þetta staðfesti hún í samtali við Fréttablaðið í dag.

Um síðustu helgi staðfesti lögreglan í Manchester í samtali við The Sun að Gylfi yrði laus gegn tryggingu til miðvikudagsins 19. janúar og hefur það fyrirkomulag verið framlengt í þrígang síðan hann var handtekinn á heimili sínu á Bretlandseyjum um miðjan júlí á síðasta ári, grunaður um brot gegn ólögráða einstaklingi.

„Það er ekkert að frétta okkar megin þar sem við erum enn að bíða eftir upp­lýsingum sjálf,“ sagði Kate King, fjöl­miðla­full­trúi lög­reglunnar í Manchester, í samtali við Fréttablaðið.

„Við erum enn að bíða eftir dóm­stólnum. Við höfum ekki enn heyrt neitt frá þeim,“ bætti hún við í samtali við Fréttablaðið.

Það ætti að skýrast í dag hvort Gylfi Þór verði ákærður fyrir brot sín eða þá að málið verði látið niður falla.

Gylfi sakaður um brot gegn barni

Leikmaðurinn sjálfur hefur ekkert tjáð sig síðan hann var handtekinn í júlí en hann gæti átt yfir höfði sér fangelsisvist, verði hann fundinn sekur.

Samningur hans við Everton rennur út í sumar og fátt sem bendir til þess að hann verði áfram í herbúðum liðsins á næstu leiktíð en hann hefur ekkert leikið með liðinu á yfirstandandi tímabili.

Gylfi á að baki 318 leiki í ensku úr­vals­deild­inni með Sw­an­sea, Totten­ham og Evert­on þar sem hann hef­ur skorað 67 mörk. Þá á hann að baki 78 A-lands­leiki fyr­ir Ísland þar sem hann hef­ur skorað 25 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert