West Ham úr leik

Dagný Brynjarsdóttir lék fyrstu 70. mínúturnar með West Ham.
Dagný Brynjarsdóttir lék fyrstu 70. mínúturnar með West Ham. Ljósmynd/@westhamwomen

Dagný Brynjarsdóttir og liðsfélagar hennar í West Ham eru úr leik í enska deildabikarnum í knattspyrnu eftir tap gegn Chelsea í átta-liða úrslitum keppninnar í Dagenham í kvöld.

Leiknum lauk með 4:2-sigri Chelsea en Pernille Harder reyndist West Ham erfið í leiknum og skoraði þrennu.

Dagný lék fyrstu 70. mínúturnar með West Ham en liðið er í áttunda sæti úrvalsdeildarinnar með 14 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert