Sigurmarkið kom á síðustu sekúndunni

Marcus Rashford skorar sigurmarkið.
Marcus Rashford skorar sigurmarkið. AFP

Marcus Rashford skoraði sigurmark Manchester United er liðið vann dramatískan 1:0-heimasigur á West Ham í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. 

Markið kom á þriðju mínútu uppbótartímans og var leikurinn flautaður af strax eftir miðjuna í kjölfarið.

Leikmenn Manchester United voru meira með boltann í leiknum en náðu ekki að skapa sér mörg færi. Það var mikið um langskot en þau voru alls ekki að virka hjá Manchester United í dag. West Ham átti sína spretti en besta færi West Ham í leiknum fékk Tomas Soucek en hann skallaði boltann framhjá á 87. mínútu eftir hornspyrnu.

Þessi sigur Manchester United var gríðarlega mikilvægur í baráttuni um fjórða sætið í deildinni en liðið er núna komið í fjórða sætið með 38 stig en West Ham er í fimmta sæti deildarinnar með 37 stig. Manchester United var síðast í einu af fjórum efstu sætum deildarinnar um miðjan október.

Man. Utd 1:0 West Ham opna loka
90. mín. Cristiano Ronaldo (Man. Utd) á skot sem er varið Ronaldo fær góða sendingu og nær fínu skoti en skotið er varið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert