Sýnt beint frá Old Trafford á mbl.is

Manchester United mætir West Ham.
Manchester United mætir West Ham. AFP

Manchester United tekur á móti West Ham í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á Old Trafford í Manchester klukkan 15.00 og leikurinn er sýndur beint hér á mbl.is. 

Útsendingin hefst kl. 14.30 með upphitun fyrir leikinn á Símanum Sport og er á sérvefnum Enski boltinn. Flautað er til leiks klukkan 15.00 en leikurinn er jafnframt í beinni textalýsingu.

Þetta er lykilleikur í síharðnandi baráttu um fjórða sæti deildarinnar. West Ham er nú í því eftirsótta sæti með 37 stig en Manchester United er með 35 stig í sjöunda sætinu og myndi því fara uppfyrir West Ham með sigri í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert