Eldur braust út á heimavelli Úlfanna

Frá Molineux-vellinum.
Frá Molineux-vellinum. AFP

Snemma í nótt kviknaði eldur á Molineux-velli enska knattspynufélagsins Wolverhampton Wanderers.

Slökkviliði West Midlands-svæðisins var gert viðvart fimm mínútum fyrir klukkan tvö í nótt og voru 20 slökkviliðsmenn mættir á svæðið örfáum mínútum síðar.

Eldurinn braust út í fundarherbergi innan leikvangsins og tókst slökkviliðinu að ráða niðurlögum eldsins klukkan 3:40 í nótt, að því er kemur fram í tilkynningu frá slökkviliði West Midlands-svæðisins.

Talið er að eldurinn hafi kviknað út frá raftæki. Enginn var á svæðinu á þessum tíma og sakaði því engan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert