Everton vill leikmann United

Donny van de Beek hefur ekki náð að festa sig …
Donny van de Beek hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá Manchester United. AFP

Enska knattspyrnufélagið Everton hefur mikinn áhuga á að fá hollenska miðjumanninn Donny van de Beek frá Manchester United að láni út tímabilið.

Crystal Palace hefur sömuleiðis sýnt van de Beek áhuga í janúar en samkvæmt Athletic er sá hollenski efstur á óskalista Everton.

Hinn 24 ára gamli van de Beek kom til United frá Ajax sumarið 2020 en tækifærin í Manchester hafa verið af skornum skammti.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert