Mörkin: Ronaldo tryggði United stig gegn Chelsea

Cristiano Ronaldo tryggði Manchester United eitt stig gegn Chelsea er liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Lokatölur á Old Trafford urðu 1:1.

Marcos Alonso kom Chelsea yfir með góðu skoti í teignum snemma í fyrri hálfleik en aðeins örfáum mínútum síðar jafnaði Ronaldo með flottu marki eftir glæsilega móttöku og þar við sat.

Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert