Mörkin: Þrjú mörk og fjör í Lundúnum

Brentford vann öruggan 3:0-heimasigur á Southampton í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Pontus Jansson, Youane Wissa og Kristoffer Ajer skoruðu mörk Brentford en mörkin hjá Jannsson og Wissa komu á 13. og 14. mínútu. Ajer bætti við þriðja markinu á 79. mínútu.

Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert